fafu

fafu hannar og framleiðir skapandi leikföng fyrir börn með áherslu á notkun umhverfisvænna og siðgæðisvottaðra (e. fair trade) hráefna og framleiðsluhátta.
Hönnun fafu leikfanganna byggir á að notast við form, liti, áferðir, hljóð og rýmislögmál í stað takmarkaðra hugtaka eins og hús, bíll og blóm, svo dæmi séu nefnd. Þannig viljum við gefa börnum tækifæri til að láta ímyndunarafl sitt leika lausum hala og efla þannig sjálfstraust þeirra og skilning á tilverunni.
Fyrsta vörulína fafu ber nafnið fikra og er fjölnota búningalína sem nýtist börnum við að þroska félagsfærni sína og frásagnarhæfni. Vörulínan er hönnuð af fafu á Íslandi en framleidd í Bangladesh, Nepal og á Indlandi. Vörurnar eru framleiddar úr silki, lífrænni bómull og þæfðri ull. Öll framleiðsla er byggð á sanngjörnum viðskiptaháttum (fairtrade) og framleiðendur okkar hafa allir siðgæðisvottun, annað hvort frá staðbundnum eða alþjóðlegum Fair Trade samtökum.